u
Þann 6. júní var eins og trjávöxtur í Bangsatúni hefði aukist af óvæntum krafti. Meira en mannhæðarhá tré mátti allt í einu sjá þar í fullum skrúða. En allt á sér eðlilegar skýringar og þessi vöxtur er víst ekki vegna hækkandi sólar og betra tíðarfars.
Arnar Birgir Ólafsson, Harpa Vilbertsdóttir og Guðlaug Sigurðardóttir gróðursetja lerkitré í Bangsatúni
Pétur Daníelsson Vélaverktaki notar hér gröfu til gróðursetninga og trjáflutninga.Anna Ágústsdóttir var að endurskipuleggja garðinn sinn við Höfðabrautina og var trjám úr garði hennar komið haganlega fyrir í nýjum heimkynnum á Bangsatúni. Þarna var um að ræða lerki, birki og ösp. Umhverfis og garðyrkjustjóri mætti þarna ásamt fylgdarliði en Pétur Daníelsson Vélaverktaki var fenginn til aðstoðar á gröfunni sinni.
j
Eyþór Kári Eðvaldsson fréttaritari
Eyþór Kári Eðvaldsson fréttaritari
Engin ummæli:
Skrifa ummæli