07 júní 2006

Rigning við Reykjaskóla

Það rigndi heil ósköp í dag, svona af og til. Ungmenni úr 9. og 10. bekk grunnskólans byrjuðu í Vinnuskólanum en fyrsta verkefni þeirra var að laga til malarstíga sem liggja um opin svæði.

Harpa og Dóra gróðursettu hreggstaðavíði í tvö limgerði á Reykjatanga í dag.

Slátturhópur hélt áfram slætti í skrúðgarðinum á Hvammstanga en annað starfsfólk Vinnuskólans vann aðalega við að gróðursetja trjáplöntur á Hvammstanga og á Reykjatanga í Hrútafirði.

Engin ummæli: