Þó að formlegt starf Vinnuskóla Húnaþings vestra sé ekki byrjað var nóg um að vera hjá starfsfólki skólans í dag. Drunur slátturvéla ómuðu í Bangsatúni, stór tré voru flutt úr einkalóð, beð voru hreinsuð við Félagsheimilið Hvammstanga og sex tonna grjót flutt frá Syðri-Kárastöðum á Vatnsnesi upp í tjaldsvæðið í Kirkjuhvammi, svo fátt eitt sé nefnt.
Myndarlegar aspir, lerki og birki flutt úr einkalóð til nýrra heimkynna á opnum svæðum í sveitarfélaginu.
Það dugðu engin vettlingatök á þetta grjót en það var sett niður við rólurnar í Kirkjuhvammi.
Starfsfólk slátturhóps sló brekkur Bangsatúns og hirtu heyið í dag.
Nýgróðursett lerki og birki vökvað í lok dagsins.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli