Umhverfisviðurkenningar afhentar. F.h. Elín R. Líndal Oddviti, Ársæll Daníelsson og Dýrun Hannesdóttir eigendur Höfðabrautar 15 ásamt Sigríði Hjaltadóttir í umhverfisviðurkenningarnefndinni.
Tiltölulega háir skjólveggir afmarka innkeyrsluna frá dvalarsvæðinu og veita gott skjól fyrir norðanáttinni. Skjólveggir er brotnir upp með innskotum, gróðri og misháum stöllum.
Þrátt fyrir tilkomumikið timburmannvirkið er stærsti hluti lóðarinnar grænn og gróin. Hér sést aðkoman að gestainnganginum. Bláleit sjávarmöl fer vel saman við loðvíði og aðra smávaxna runna nærri stéttinni. Lýsing póstanna í kvöldrökkrinu bíður gesti velkomna.
Horft í norður af dvalarsvæðinu. Hér er margt að sjá sem stuðlar að aukinni notkun garðsins. Skjól fyrir norðanáttinni, skrautblóm í pottum, heitur pottur, borð, stólar og gashitari til að lengja útivistartímann á svölum kvöldum.
Dvalarsvæðið bíður upp gott umhverfi fyrir samverustundir fjölskyldunnar og stækkar húsið með nýju opnu herbergi. Það er skemmtilegt að sjá hvernig gluggar skjólveggjarins stækka rýmið og veita útsýni yfir Miðfjörðinn.
Umhverfis- og garðyrkjustjóri Húnaþings vestra óskar eigendum Farfuglaheimilisins að Ósum á Vatnsnesi og Höfðabraut 15 Hvammstanga hjartanlega til hamingju með viðurkenningarnar og þakkar um leið nefndinni fyrir gott samstarf á liðnum árum.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli