29 ágúst 2006

Lest, skip og gormatæki

Þau voru glöð börnin á leikskólanum Ásgarði á Hvammstanga þegar þau mættu aftur til leiks eftir sumarfrí og sáu að búið var að laga og mála gömlu leiktækin á lóðinni. Starfsfólk vinnuskóla Húnaþings vestra hefur undanfarnar vikur endurbætt leiktækin að miklum hluta með því að smíða nýjar plötur, skipta um spýtur og mála upp á nýtt leiktækin á lóðinni, lestina, bátinn og gormatækin.
Leikskólabörnin ánægð með endurbætta og nýmálaða lest.

Ekki er gamli báturinn verri, nýkominn úr slipp eftir miklar viðgerðir og búið að setja í hann nýtt stýri.

Það var gaman að geta gert upp þessi gömlu tæki í stað þess að henda þeim og fá ný. Það má líka segja að lestin, gormatækin og báturinn séu orðin dýrmætur hluti af byggðarsögunni enda hafa fjölmargir Húnvetningar alist upp við þessa mögnuðu fararskjóta.

Engin ummæli: