27 ágúst 2006

Námsstyrkir afhentir á Þinghús-Bar


Byggðarráð Húnaþings vestra samþykkti á fundi sínum þann 14. ágúst sl. að úthluta eftirtöldum styrk úr Húnasjóði árið 2006: Elín Ása Ólafsdóttir. Nám: Svæða- og viðbragðsfræði, Guðrún A. Matthíasdóttir. Nám: Rekstrar- og stjórnunarnám, Ólöf Kristjánsdóttir. Nám: Meistaranám í samgönguverkfræði, Pétur Vilhjálmsson. Nám: Meistaranám í stjórnsýslufræðum, Sigurjón Þorsteinsson. Nám: Véltæknifræði.

Þessi mynd var tekin þegar Guðný Helga Björnsdóttirvaraoddviti afhenti styrkina við hátíðlega athöfn á Þinghús-Bar Hvammstanga.

Einnig hlutu styrki: Sólrún Dögg Árnadóttir. Nám: Hjúkrunarfræði, Stella Bára Guðbjörnsdóttir. Nám: Meðhöndlun í blöndun íslenskra blómadropa, Stefanía S. Hinriksdóttir. Nám: Bifhjólavirkjun, Þorgerður Tómasdóttir. Nám: Iðnaðartæknifræði. Styrkfjárhæð á hvern styrkþega er kr. 80.000-

Engin ummæli: