06 október 2005

Þökulagning við Hvammstangabraut


Í dag voru starfsmenn sveitarfélagsins að lagfæra umferðareyjar eftir hitaveituframkvæmdir nú fyrr í haust. Verið er að setja nýja mold í rétta hæð svo hægt verði að ljúka þökulögn næstkomandi mánudag.

Þau Harpa og Zaldy, flokkstjórar vinnuskólans, voru að vinna við fegrun Hvammstangabrautarinnar í dag.

Ritstjóri rakst einnig á þennan smið uppi á þaki hjá sóknarprestinum á Hvammstanga og gat ekki stillt sig um að taka af honum mynd. Þetta reyndist enginn annar en Þorvaldur Björnsson starfsmaður Tveggja Smiða.

Þorvaldur mátti ekki vera að því að líta upp frá vinnu sinni er ritstjóra bar að enda önnum kafinn við að gera þakið fokhelt.


Það er ljóst að nýta þarf vel þá blíðvirðisdaga sem gefast til framkvæmda því að veður geta verið válynd á þessum tíma hér á norðurslóðum. Veðurspáin fyrir næsta sólarhring er svohljóðandi: Suðlæg átt 3-8 m/s og léttir til í kvöld og nótt. Snýst í norðaustan 8-13 seint á morgun með slydduéljum. Hiti 0 til 6 stig í nótt og á morgun.



Engin ummæli: