-
Í gær var nýr samningur undirritaður milli Húnaþings vestra og Urðunar ehf. Um er að ræða þjónustusamning varðandi urðun heimilisúrgangs. Samkvæmt honum heldur Urðun ehf. áfram að sinna daglegum rekstri urðunarstaðarins í landi Syðri-Kárastaða en samningurinn mun taka gildi 1. janúar 2006 og renna út 31. desember 2010.
Urðunarsvæðið í landi Syðri-Kárastaða á Vatnsnesi.
-
Helstu nýjungar frá eldri samningi eru þær að gerðar eru strangari kröfur varðandi eftirlit og ýmsar mælingar. Þá mun Urðun ehf. halda grænt bókhald til að fylgjast með helstu umhverfisþáttum starfseminnar. Í grænu bókhaldi er leitast við að tryggja að þróun starfseminnar sé jákvæð fyrir umhverfið enda í samræmi við stefnu Húnaþings vestra um sjálfbært samfélag, sjá staðardagskrá 21 fyrir Húnaþing vestra.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli