12 október 2005

Fréttabréf Vinnuskólans 2005

-
Vetur er nú skollinn á og sumarstarfinu víst lokið í bili. Það er því ef til vill við hæfi nú að líta örlítið til baka og tíunda það sem vinnuskólinn vann við í sumar. Óhætt er að segja að starfið hafi gengið afar vel og mörg spennandi verkefni verið leyst af hendi. Nemendur og starfsmenn börðust eins og hetjur við arfa og illgresi í vályndum veðrum en fengu jafnframt einnig nokkra góða sólardaga og áhugaverðari verkefni en arfaeyðingu.

-

Sunnefa skrifar verkefni dagsins í stóruskruddu


Starfsfólk og nemendur vinnuskólans í sumar voru rúmlega sextíu talsins í sjö vinnuhópum þegar flest var. Unnið var á þremur vinnustöðvum; á Laugarbakka, Reykjaskóla og á Hvammstanga. Verkstjóri var Arnar Birgir Ólafsson og flokkstjórar þau; Harpa Vilbertsdóttir, Zaldy Hauksson, Elísa Guðmundsdóttir og Guðbjörg Ingólfsdóttir. Í sláttuhóp unnu átta starfsmenn undir stjórn Sonju Eðvaldsdóttur.

Verkefni vinnuskólans. Í byrjun sumars voru öll trjábeð hreinsuð rækilega af fúlgresi og síðan leitast við að fara reglulega yfir þau til að halda þeim snyrtilegum. Tilbúnum áburði var dreift yfir öll beðin og víða var sett nýtt lag af mold yfir.

Beðahreinsun í skrúðgörðum Laugarbakka


Stærsta verkefni vinnuskólans er án efa grassláttur og hirðing. Í sumar unnu starfsmenn sláttuhóps á sláttuvélum og orfum við heyskapinn en fengu síðan aðstoð annarra hópa við að hirða upp grasið þegar mikið lá við.

Starfsmenn sláttuhóps við heyskap


Þær flatir sem tilheyra sveitarfélaginu eru margar og dreifðar víða um Húnaþing. Auk Hvammstanga og Laugarbakka voru grasflatir slegnar m.a. við Reykjaskóla og við Staðarkirkju. Eins og undanfarin sumur hafa starfsmenn vinnuskólans tekið að sér slátt hjá eldri borgurum og öryrkjum. Í sumar voru tólf slíkir garðar slegnir reglulega en fjölmargir íbúar fengu aðra aðstoð frá vinnuskólanum við að losna við garðaúrgang auk annara viðvika.

Námskeið og fræðsla. Haldið var leiðtoganámskeið fyrir alla nemendur vinnuskólans snemma í sumar. Einnig var boðið upp á aðra fræðslu s.s. skoðunarferð í steypustöðina hjá Ástvaldi Benediktssyni þar sem sagt var ítarlega frá starfsemi stöðvarinnar. Við þökkum hér með Ása fyrir góðar móttökur.

Nemendur Vinnuskólans á leiðtoganámskeiði í Bangsatúni


Þá sýndi Björn Þór Sigurðsson / Bangsi okkur hvernig best er að verka sel, útskýrði hlutverk líffæranna og hvaða hlutar selsins væru nýttir til matar. Þeim sem unnu lengst í sumar gafst færi á því að fara í stangveiðiferð með Ákanum en sú ferð var mjög fróðleg og fengsæl.

Skógrækt. Farið var með skipulögðum hætti yfir skógræktarsvæðið við Hvammstanga. Gras var reitt frá trjáplöntunum og tilbúinn áburður settur í kringum þær. Gróðursettar voru um 4.000 plöntur víðsvegar á skógræktarsvæðinu. Þá voru um 500 tré grisjuð úr skógræktinni og gróðursett á Laugarbakka og á Hvammstanga.

Veraldarvinir. Í júlí fengum við liðsauka frá fjarlægum löndum. Um var að ræða fjórtán meðlimi í sjálfboðaliðasamtökunum Veraldar vinum / Worldwide friends. Þau komu hingað til að vinna að margvíslegum umhverfisverkefnum og til að aðstoða við unglistahátíðina.

Veraldarvinir við Hamarsbúð á Vatnsnesi


Það var Umhverfis- og garðyrkjustjóri sem sótti um að fá hópinn hingað en Karl og Þorri á Reykjaskóla sáu veraldarvinum fyrir mat, afþreyingu og húsaskjóli meðan á dvöl þeirra stóð.

Unglist. Nemendur vinnuskólans lögðu mikið á sig til að gera unglistahátíðina eftirminnilega. Dögum saman var setið yfir saumavélum og smíðatólum til að útbúa búninga og amboð til ýmissa verka. Vinnuskólinn sá um skrúðgönguna þar sem þemað var ,,Bændur leiða fé til slátrunar”. Í því sambandi var vinnuskólabíllinn klæddur með gæru og settur á hann kindahaus en dráttarvél með hrópandi bændum rak lestina. Þá var settur upp hinn árlegi gjörningur ,,Líf í skrúðgarði”.

Líf í skrúðgarði Félagsheimilisins

Þau voru annars ólík atriðin sem vinnuskólinn tók þátt í en án efa var það ,,Manntafl í Miðfirði” sem mest vinna var lögð í. Þar klæddust fjölmargir nemendur vinnuskólans og veraldarvinir skrautlegum búningum taflmanna og börðust á risareitum. Búningar voru að mestu gerðir úr heimatilbúnum hráefnum.

Önnur verkefni. Í þessum pésa er ekki hægt að fara ítarlega í verkefnalista sumarsins en til að gera langa sögu stutta má nefna að í sumar höfum við m.a. verið að; fúaverja leiktæki og girðingar í leikskólanum, kantskera meðfram gangstéttum, gróðursetja földa stórra trjáplantna á Hvammstanga og Laugarbakka, laga fjölmörg sár eftir hita- og vatnsveituframkvæmdir síðustu ára, hreinsa göngustíginn milli Hlíðar- og Hjallavegs, hreinsa hellulögðu stéttarnar við Nestún,...

Tiltekt á leikskólalóð Ásgarðs


...búa til trjábeð og blómabeð, setja upp rólur við tjaldsvæðið, flytja grjót í bæinn, gera nýjan göngustíg í Bangsatúni, gera breytingar á umhverfi rennibrautarinnar á leikskólalóðinni með góðri aðstoð Þráins Traustasonar trésmiðs. Að lokum má nefna aðkomu vinnuskólans að sparkvellinum við grunnskólann en þar var umhverfið mótað, þökulagt og snyrt.

Að endingu. Þrátt fyrir að nokkuð er síðan formlegu starfi vinnuskólans lauk hafa nokkrir starfsmenn unnið fram á haustið við grasslátt og önnur garðyrkjustörf. Á næstu vikum verður áfram unnið að nokkrum umhverfisverkefnum. Í því sambandi má nefna lóðarframkvæmdir við Norðurbraut 13 og lagfæringar eftir hitaveituframkæmdir á Hvammstangabraut. Þá verður hellulagt undir nýja bekki á Hvammstanga og á Laugarbakka jafnframt sem fleiri ruslatunnur verða settar niður í stað þeirra sem hafa eyðilagst á undanförnum árum.

Pönnukökubakstur í aðalbækistöðinni á köldum degi


Að lokum þökkum við nemendum vinnuskólans, starfsmönnum áhaldhúss, sveitastjórnarskrifstofu, verktökum og öðrum íbúum Húnaþings vestra kærlega fyrir gott samstarf og ábendingar á liðnu sumri.

Sjáumst heil, Starfsfólk Vinnuskólans

Engin ummæli: