13 desember 2005

Jólatré sótt í Kirkjuhvamminn

-
Í dag fóru elstu börnin á leikskólanum Ásgarði í skógarferð og sóttu sér jólatré í Kirkjuhvamminum. Gengið var frá kirkjunni, upp í skógræktarsvæðið og leitað að heppilegu tré til að prýða húsakynni leikskólans. Umhverfis- og garðyrkjustjóri Húnaþings slóst með í för með bogasög á bakinu. Eftir nokkra leit fannst fallegt grenitré ofarlega í skógræktinni og ákveðið var að taka það með til baka.
-
Giljagaur, sem kom til byggða í nótt, aðstoðaði börnin við leitina að heppilegu jólatré.
-
Þegar búið var að saga tréð hjálpuðust börnin við að bera jólatréð til byggða.
-
Börnin og Giljagaur voru að vonum ánægð með uppskeruna enda tréð fallegt og verður brátt skreytt litríkum kúlum og öðru glingri í leikskólanum Ásgarði.


Engin ummæli: