-
Garðar Guðmundsson verktaki var í dag önnum kafinn á lóð Selaseturs Íslands á Hvammstanga. Verið er að nota þíðuna til rífa upp grasþúfur og slétta lóðina í kringum hið virðulega hús Sigurðar Pálmasonar. Síðar stendur til að setja malarefni yfir flötina og útbúa útisvæði fyrir Selasetrið.
-
-
Þess má geta að setrið fékk nýverið viðurkenningu fyrir áhugaverða nýjung í ferðaþjónustu á uppskeruhátíð ferðaþjónustunnar á Norðurlandi.
-

Engin ummæli:
Skrifa ummæli