12 desember 2005

Söfnun á heyrúlluplasti frestað

-
Vegna óviðráðanlegra orsaka hefur söfnun á heyrúlluplasti verið frestað fram yfir áramót. Fyrirkomulag söfnunarinnar verður nánar auglýst hér á heimasíðu sveitarfélagsins í byrjun janúar.
-
Söfnun á heyrúlluplasti hefur verið frestað þar til í janúar á næsta ári
-
Undanfarin ár hefur heyrúlluplast verið tekið frá bændum tvisvar á ári án endurgjalds. Stefnt er að því að fjölga ferðum svo lengi sem veður og færð hamli ekki söfnuninni.
-

Engin ummæli: