-
Frumkvöðlasetur ungs fólks í Húnaþingi vestra, sem er rekið af Hagfélaginu, veitti Heilbrigðisstofnuninni á Hvammstanga styrk til rannsóknarverkefnis „Virk skammtíma dvöl”. Verkefnið snýst um nýja þjónustulausn, hvíldarinnlagningar og endurhæfingar.
-
Guðmundur Haukur Sigurðsson framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar, og Gudrun M. H. Kloes fyrir hönd Frumkvöðlaseturs, ganga frá samningi.-
Verkefnið er unnið af Guðrúnu Elínu Benónýsdóttur hjúkrunarfræðingi, en hún tengir verkefnið í MSc nám sitt við Háskólann á Akureyri. Einnig vinnur Garðar Jónsson að verkefninu, en hann mun jafnfram tengja verkefnið við doktorsnám sitt á sviði þjónustugæða í öldrunarþjónustu við Háskólann í Stirling í Skotlandi.
-
Megintilgangur þróunarstarfseminnar er að standa vörð um rekstur öldrunarþjónustu heilbrigðisstofnunarinnar, eins og fram kemur í styrkumsókninni. Styrkurinn nemur kr. 450.000 kr., og var gengið frá samningi á milli Frumkvöðlaseturs og Heilbrigðisstofnunarinnar fyrir skömmu.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli