-
Síðustu daga hefur verið unnið að frágangi í kringum nýju spennistöðina við Lækjargötu. Pétur Daníelsson vörubílstjóri kom með sand og möl en Flosi Eiríksson jarðvinnuvélaverktaki sá um gröfuvinnu, sem fólst í því að sanda jarðstrengi og jafna úr möl ásamt öðrum frágangi.
-
-
Búið er að tengja alla kapla sem eiga að tengjast nýju stöðinni fyrir utan einn háspennustreng sem verður tengdur á næstu dögum. Gamla stöðin hefur verið tekin úr notkun en hún verður rifin og hverfur af yfirborði jarðar með vorinu þegar búið verður að hreinsa búnaðinn úr henni. Eins og sjá má sómir þetta nýja hús sér vel þarna í Bangsatúninu
-
Eyþór Kári Eðvaldsson fréttaritari umhverfisfrétta
Eyþór Kári Eðvaldsson fréttaritari umhverfisfrétta

Engin ummæli:
Skrifa ummæli