Þessar myndir voru teknar þegar verktakarnir Ársæll Daníelsson, Eyþór Eðvaldsson og Flosi Eiríksson voru að plægja streng niður í göngustíg Bangsatúns á Hvammstanga. Strengnum er ætlað það hlutverk að glæða nýja ljósastaura birtu til að lýsa upp skrúðgarðinn. Arnar Birgir Ólafsson umhverfisstjóri hefur yfirumsjón með verkinu.
Umhverfisstjórinn spígsporar um svæðið og sér til að allt sé haganlega gert. Ársæll aðstoðar Flosa við plæginguna.
Ef allt gengur að óskum munu runnar og bekkir skrúðgarðsins brátt verða baðaðir í nýju ljósi.
Eyþór Eðvaldsson fréttaritari

Engin ummæli:
Skrifa ummæli