16 ágúst 2006

Blíðskapar blíða

Blíðskaparveður var í Húnaþingi í dag. Loksins, loksins sögðu margir en veðrið undanfarið hefur verið afar haustlegt, kalt og blautt. Í dag dró ský frá sólu og fjölmargir góðborgarar fækkuðu fötunum í sólinni og nutu þess að endurheimta sumarið. Þegar þessar myndir voru teknar laust eftir hádegi í dag var starfsfólk Vinnuskólans að slá og snyrta skrúðgarðinn Bangsatún á Hvammstanga.

Það var heitt í skrúðgarðinum í dag og lykt af nýslegnu grasi.

Ein flokkstýra Vinnuskólans hreinsar trjágreinar ofan af brekkuvíði eftir klippingu.

Nú er bara að krossleggja fingur og vona að veðrið haldist nokkuð óbreytt en spáð er hægviðri eða hafgolu og léttskýjuðu á morgun með þokubökkum við ströndina og hita upp á 10 til 18 stig.

Engin ummæli: