Í dag voru starfsmenn sveitarfélagsins þeir Guðmundur Erlendsson og Þorbergur Guðmundsson að vinna við nýju ljósastaurana í Bangsatúni. Seinna um daginn komust þeir svo í gagnið og lýstu upp stíginn frá Lækjargötu að göngubrúnni. Þessir vígalegu staurar eru í gamaldags stíl og munu gefa garðinum skemmtilega rómantískan birtu á haust- og vetrarkvöldum. Ef til vill eiga fleiri eftir að bætast við í framtíðinni.
Beggi hjá áldahúsinu aðstoðar Guðmund.
Að lokum sá Eyþór Eðvaldsson um að tengja staurana eftir kúnstarinnar reglum og stuttu síðar lýstu þeir upp túnið.
Verkfarendur sem átt hafa leið um garðinn hafa líst ánægju yfir framtakinu. Ein eldri kona hafði á orði að þetta væri voða flott, alveg eins og í gömlu bíómyndunum.
Eyþór Eðvaldsson fréttaritari

Engin ummæli:
Skrifa ummæli