Þessa dagana er unnið að ýmsum frágangi á lóð Selasetursins, m.a. er verið að leggja lokahönd á gerð göngustíga um lóðina og handriðið meðfram húsinu hefur verið gert upp og skartar nú sínum upprunalega lit. Fyrr í sumar unnu einnig sjálfboðaliðar frá alþjóðlegum sjálfboðaliðasamtökum við gerð göngustíga á lóð Selasetursins, en sjálboðaliðarnir voru hér staddir á vegum Húnaþings vestra.
Gerð stíganna er talsverð vinna en margar hendur vinna létt verk og eru stígarnir nú farnir að taka á sig mynd. Selasetrið þakkar sjálfboðaliðunum kærlega fyrir hjálpina og óskar þeim velfarnaðar. http://www.selasetur.is/

Engin ummæli:
Skrifa ummæli