15 ágúst 2006

Grafið fyrir ljósastaurum

Í dag unnu verktakarnir og feðgarnir Pétur Daníelsson og Daníel Pétursson í Bangsatúni á Hvammstanga. Verið er að undirbúa komu nýrra ljósastaura sem settir verða upp eins fljótt og auðið er. Um er að ræða ljósastaura í þeim stíl sem tíðkaðist að brúka í helstu skrúðgörðum heimsborganna um þarsíðustu aldamót.

Jarðvinnuverktakar grófu fyrir undirstöðum nýrra ljósastaura í Bangsatúni í dag.

Af öðrum fréttum er það að segja að nú er starfi nemenda Vinnuskólans lokið. Þrátt fyrir það er vissulega enn margt að gera. Þeir starfmenn sem eftir eru munu sjá um að halda lóðum sveitarfélagsins snyrtilegum þar til Vetur konung ber að garði. Starfsmenn í slátturhóp eru ekki margir eftir en þeir keppast nú við að slá lóðir eldirborgara, öryrkja og opin svæði á Hvammstanga og Laugarbakka. Aðrir starfsmenn vinna m.a. við smíðar, trjáklippingar og hreinsun beða. Þá eru ótaldir starfsmenn Áhaldahússins sem aðstoða Vinnuskólann eftir bestu getu og verktakar sem sinna afmörkuðum verkefnum hér og þar í sveitarfélaginu.

Engin ummæli: