31 júlí 2006

Sjálfboðaliðarnir á förum

Margir hafa orðið varir við nærveru sjálfboðaliðasamtakanna Seeds og Veraldarvina hér síðustu vikurnar. Nú er starfi þeirra lokið að sinni og sjálfboðaliðarnir farnir hver í sína áttina, sumir til sinna heimahaga, aðrir til móts við ný ævintýri á Íslandi eða öðrum löndum.

Veraldarvinir vinna að lagfæringu á gosbrunni Kvenfélagsgarðsins
Sjálfboðaliðarnir dvöldu að þessu sinni í Grunnskóla Húnaþings vestra á Hvammstanga og voru einnig í góðu yfirlæti hjá fjölskyldum á Hvammstanga. Í samstarfi við heimamenn var unnið að ýmsum umhverfisverkefnum, s.s. lagfæringu gömlu legumerkjanna á Hvammstanga, stígagerð á lóð Selasetursins, göngustígagerð upp að tjaldsvæðinu í Kirkjuhvammi, lagfæringu Kvenfélagsgarðsins og lagfæringu gamla vigtarhússins. Margir íbúar urðu þeirra varir í gegnum Unglistahátíðina ,,Eldur í Húnaþingi" sem er nú nýafstaðin. Þar tóku sjálfboðaliðarnir virkan þátt í ólíkum uppákomum og settu mikinn svip á hátíðina í ár.

Hópur Veraldavina hefur haldið úti heimsíðu um störf sín hér en slóðin á þá síðu er http://wf-in-hvammstangi.blogspot.com og skorum við á alla að kíkja þar inn enda margt fróðlegt að sjá og lesa.

Við hjá Vinnuskólanum og Unglist kveðjum Veraldavini og Seeds og þökkum þeim kærlega fyrir frábær störf, góð kynni og skemmtilega daga hér í Húnaþingi vestra.

Engin ummæli: