Það hefur verið býsna algeng sjón, í Húnaþingi vestra í sumar, að sjá stórvirkar vinnuvélar slíta upp gömul alaskavíðilimgerði. Ástæður þessa eru ýmsar en mörg limgerði sem eru mótuð úr alaskavíði eru orðin tiltölulega gömul og úr sér vaxin. Þá fer einnig mikill tími í klippingar ef halda á limgerðunum þéttum og fínum en stofnar gamalla alaskavíðilimgerða eru víða orðnir nokkuð sverir, grófir og lauflitlir á neðstu greinum.
Margir lóðareigendur hafa gripið til þess ráðs að fjarlæga þessi gömlu limgerði. Þá hefur Vinnuskólinn einnig fjarlægt limgerði af nokkrum stöðum, s.s. við Íþróttamiðstöðina, Fífusund, og Hvammstangabraut en þau limgerði voru orðin mjög illa farin. Engin ástæða er til að gráta alaskavíðinn því þessar harðgerðu plöntur hafa víða þjóna vel sínu frumkvöðla hlutverki í þéttbýli Húnaþings vestra. Í stað alaskavíðisins eru gjarnan gróðursettar fíngerðari tegundir eins og hreggstaðavíðir, strandavíðir og viðja.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli