11 júlí 2006

Mikið að gerast við Norðurbrautina

Þennan dag var mikið að gerast á Norðurbrautinni á Hvammstanga. Þar voru saman komnar nokkrar vinnuvélar ásamt viðeigandi starfsmönnum.

Margar hendur á lofti.

Pétur Daníelsson vélaverkataki vann þarna við að fjarlægja alaskavíðilimgerði sem umhverfis- og garðyrkjustjóra fannst að væri farið að teygja arma sína fulllangt út á gangstétt. Til verksins notaði hann litla beltagröfu og kranabíl. Einnig voru á svæðinu starfsmenn áhaldahúss með traktorsgröfu og traktor með sturtuvagn. Þeir unnu að lagfæringu gróðubeðs sunnan við íbúðir aldraðra í Nestúni. Þar er núbúið að hellulegja og setja upp ruslakar og garðbekk. Trúlega mun bekkurinn koma í góðar þarfir þegar gestir og gangandi eiga leið hjá og vilja hvíla lúin bein.
Eyþór Kári Eðvaldsson fréttaritari

Engin ummæli: