.
Undanfarið hefur verið unnið að dýpkunarframkvæmdum í smábátahöfninni á Hvammstanga. Til verksins voru fengnir Vélaverktakar frá Sauðárkróki og notuðu þeir beltagröfur og vörubíla.
Gröfurnar mokuðu jarðvegi á land en vörubílarnir keyrðu efninu í burtu og var það notað til uppfyllingar sunnan við saumastofuhúsið. Á meðan á framkvæmdunum stóð var hlut af flotbryggjunni fjarlægður svo gröfurnar ættu auðveldara með að athafna sig.
Eyþór Kári Eðvaldsson fréttaritari

Engin ummæli:
Skrifa ummæli