Heyrúlluplasti og áburðarsekkjum verður safnað saman í næstu viku, 19. til 23. júlí, til þeirra aðila sem undanfarin ár hafa óskað eftir slíkri þjónustu. Nýjir aðilar sem óska eftir að losna við heyrúlluplast eru vinsamlegast beðnir að láta Hrannar Haraldsson verktaka vita í síma 895-2052.
.
Nú er hægt að skila inn til endurvinnslu bæði heyrúlluplasti og tómum áburðarsekkjum.Kröfur Endurvinnslunnar á frágangi rúlluplastsins eru eftirfarandi; engir aðskotahlutir mega vera í plastinu sem torvelda endurvinnslu s.s. hey, net og bönd. Losun á hverjum bæ skal taka sem skemmstan tíma, því er mikilvægt að frágangur og aðkoma sé góð.
Kröfur Endurvinnslunnar á frágangi áburðarsekkja eru eftirfarandi: Setja skal innri poka (þann glæra) í sér poka af sömu tegund og ytri poka í sér poka af sömu tegund þannig að þeir haldist aðskildir. Ekkert annað en áburðarsekkir skulu vera í pokunum.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli