Selasetur Íslands opnaði formlega í gær. Aðsetur þess er á Hvammstanga í glæsilegu húsi Sigurðar Pálmasonar þar sem lengi var rekin verslun. Við opnun setursins tóku til máls Sturla Böðvarsson samgönguráðherra, Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra og Skúli Þórðarson, sveitastjóri Hvammstanga. Karl Sigurgeirsson hélt einnig erindi þar sem fram kom að fjölskylda Sigurðar Pálmasonar væri mjög ánægð með hið nýja hlutverk hússins og að vel hefði verið staðið að endurbótum þess.
Í Selasetri Íslands má sjá margvíslega muni sem tengjast selveiðum og nýtingu sela, myndir og teikningar af selum og margs konar fróðleik um þær tvær selategundir sem eiga heimkynni við Ísland, landsel og útsel. Einnig er þar fróðleikur um aðra seli sem hingað koma sem flækingar. Forstöðumaður Selaseturs Íslands er Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli