Jón Eggert Guðmundsson ætlar að ljúka 3200 kílómetra göngu sinni um strandvegi landsins í sumar. Gangan hófst frá Egilsstöðum 6. maí s.l. og lýkur í Reykjavík 19. ágúst, daginn sem Reykjavíkurmaraþon verður haldið. Gangan er til styrktar Krabbameinsfélaginu. Jón Eggert verður á Hvammstanga um klukkan ellefu á morgun, 17. júní, og eru allir sem geta hvattir til að slást í för með honum og sýna málefninu stuðning.
Hægt er að leggja frjáls framlög inn á sérstakan söfnunarreikning 301-26-102005, kt. 700169-2789, eða hringja í söfnunarsíma 907 5050 og verða þá eitt þúsund krónur innheimtar með næsta símareikningi. Hægt er að lesa um ferðir Jóns og komast að því hvernig hægt er að styrkja Krabbameinsfélagið með því að smella á tengil merktan Strandvegaganga á http://strandvegaganga.blog.is/blog/strandvegaganga/

Engin ummæli:
Skrifa ummæli