Sumarið er tími framkvæmda og hér er dæmi um það sem er að gerast í húsbyggingum í sveitarfélaginu. Um Þessar mundir er verið að byggja nýtt hús á Hvammstanga. Það verður staðsett í smábýlahverfinu við Höfðabraut 44 en það er Garðar Jónsson sem er eigandinn.
Á þessari mynd sem tekin var fyrir nokkrum dögum eru þeir feðgar Pétur Daníelsson vélaverktaki og Daníel Pétursson við vinnu í grunni nýja hússins.Smábýlahverfið er með fjórum skipulögðum lóðum vestan við Höfðabraut, sunnan við Eyri. Búið er að byggja á þeirri syðstu en einnig er búið að sækja um hinar tvær sem eftir eru. Hverfið er hugsað fyrir íbúðarhús með stórri lóð þar sem hægt er að vera með trjárækt eða minni háttar búskap t.d. hesta.
-
Eyþór Kári Eðvaldsson fréttaritari
Engin ummæli:
Skrifa ummæli