17 maí 2006

Vorverk við Reykjaskóla

Starfsmenn sveitarfélagsins eru víða að störfum í Húnaþingi vestra enda verkefnin mörg. Í dag var einn flokkur að störfum á Reykjatanga að undirbúa gróðursetningu á trjáplöntum í tveimur lóðum. Þegar þessi mynd var tekin vann flokkurinn hörðum höndum við að stinga upp gamalt beð þar sem hluti plantanna mun fá að skjóta rótum.

Beðavinna við Reykjaskóla.

Á Reykjatanga eru reknar skólabúðir þar sem nemendum grunnskóla víða af landinu gefst kostur á að dvelja í vikutíma við leik og störf en árlega koma þangað um 2200 til 2500 börn. Þegar starfsmenn sveitarfélagsins höfðu lokið beðavinnunni í dag buðu umsjónarmenn Skólabúðanna þeim upp á heitan mat í matsal gamla Reykjaskóla.


Kjartan Óli Ólafsson matreiðslusnillingur, töfraði fram næringaríkan hádegisverð fyrir vinnuflokkinn svo engin þurfti að svelta.

Þess má geta að skólahald hófst að Reykjum í Hrútafirði árið 1931 með stofnun Héraðsskólans að Reykjum og stóð nær óslitið til ársins 1988 ef undan eru skilin árin 1940-1943 er breskt setulið hafði þar aðsetur.

Engin ummæli: