Gamla Verslunarhús Sigurðar Pálmasonar á Hvammstanga er að taka miklum breytingum þessa dagana. Unnið er við að snyrta lóðina og færa útlit hússins aftur í upprunalegt horf en það var byggt árið 1926. Umhverfisfréttir hittu Guðmund Jóhannesson fyrir utan húsið þar sem hann var að vinna að endurgerð hins gamla handriðs sem hefur verið eitt af einkennismerkjum verslunarhússins.
-

Engin ummæli:
Skrifa ummæli