16 maí 2006

Síðasti fundur

Sveitarstjórn Húnaþings vestra kom saman til 119. fundar í Félagsheimili Hvammstanga þann 11. maí síðastliðinn. Þetta var jafnframt síðasti fundur núverandi sveitarstjórnar Húnaþings vestra en sveitarstjórnarkosningar verða þann 27. maí næstkomandi.

Frá vinstri: Ólafur B. Óskarsson, Þorvaldur Böðvarsson, Oddur Sigurðarson, Guðný Helga Björnsdóttir, Stefán Böðvarsson, Heimir Ágústsson, Þ. Karl Eggertsson, Elín R. Líndal.

Umhverfis- og garðyrkjustjóri vill nota tækifærið og þakka sveitarstjórn gott og ánægjulegt samstarf á liðnum árum.

Engin ummæli: