23 maí 2006

Svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs.

Á 119. fundi Sveitarstjórnar þann 11. s.l. var ,,Svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs 2006-2020 fyrir Húnaþing vestra" samþykkt. Þessi áætlun markar stefnu sveitarfélagsins í sorphirðu og endurvinnslu til næstu fjórtán ára. Svæðisáætlunin er einnig unnin í tengslum við stefnu sveitarfélagsins um sjálfbæra þróun, Staðardagskrá 21. Fyrsta útgáfa staðardagskrár var samþykkt af sveitarstjórn Húnaþings vestra í desember 2004. Einn kafli þeirrar dagskrár fjallar um úrgang frá heimilum og fyrirtækjum. Þessi áætlun er uppfærsla og endurskoðun þess kafla.
Samræmt útlit og merkingar sorpíláta er afar mikilvægur þáttur í góðu sorphirðu- og endurvinnsluferli.

Í velferðarsamfélagi nútímans fer úrgangur vaxandi. Fjölmargir þættir hafa hér áhrif, s.s. kaupmáttur einstaklinga, umsvif atvinnurekstrar, síbreytilegar neysluvenjur, tískustraumar og styttri líftími hvers kyns neysluvöru. Sérhver árangursrík aðferð til að sporna við þessari þróun er eftirsóknarverð þar sem hún lækkar kostnað á öllum stigum meðhöndlunar úrgangs.
-
Samfélagslegur ávinningurinn er mestur þegar myndun úrgangs er lágmarkaður með skynsamlegri innkaupastefnu á vörum og þjónustu.
Hér er hægt er að nálgast Svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs 2006-2020 í Húnaþingi vestra.

Engin ummæli: