25 maí 2006

Göturnar á Hvammstanga

-
Eins og glöggir íbúar sveitarfélagsins hafa tekið eftir undanfarna daga hafa margvísleg tól og tæki verið notuð við hreinsun og lagfæringu gatna undanfarna daga á þjóðvegum og helstu þéttbýlisstöðum í Húnaþingi vestra. Gatnakerfið kemur nokkuð illa undan vetri og víða má sjá möl, sand og holur í götum, brotna kantsteina, skemmdir í umferðareyjum og sprungur í stéttum.
-
Starfmenn sveitarfélagsins raka grjót af umferðareyjum.
Það þýðir þó ekkert fyrir starfsmenn sveitarfélagsins að leggjast í þunglyndi yfir þessu heldur senda frekar vinnuflotann á svæðið til að hreinsa og bæta. Fyrsta verk er að smúla og sópa stéttir sem og raka grjóti og möl af umferðareyjum og öðrum grasflötum.

Stéttar sópaðar við Norðurbraut á Hvammstanga.

Jafnhliða þessari hreinsun er best ef Vegagerðin notar tækifærið og fyllir í holur sem myndast hafa í slitlagi gatna hér og þar í vetur.


Starfsmenn Vegagerðarinnar fylla í holur á Hvammstangabraut.

Þegar holufyllingu vegagerðarinnar er lokið er ekkert því til fyrirstöðu að senda götusópara til að hreinsa upp síðustu minningar vetrarins.


Götusóparinn á Hvammstangabrautinni.


Þegar þessum vorverkum er lokið er hægt að huga að skemmdum á graseyjum, kantsteinum og stéttum og vona að sumarið verði notadrjúgt til þeirra verka.

Engin ummæli: