10 maí 2006

Sjálfbær og aðgengileg náttúruskoðun

'
Dagana 11. - 13. maí verður haldið námskeið um uppbyggingu náttúruskoðunarstaða fyrir ferðamenn. Námskeiðið er opið öllum áhugasömum og boðið verður upp á skoðunarferðir á Vatnsnes og norður á Strandir. Hægt er að skrá sig á námskeiðið með því að hafa samband við gudrun@ssnv.is og í síma 455-2515.

Hindisvík á Vatnsnesi.

Að námskeiðinu standa; Byggðasafn Húnvetninga og Strandamanna, Náttúrustofa Norðurlands vestra, Selasetur Íslands á Hvammstanga og Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra í samvinnu við Norce verkefnið. Sjá nánar á www.norce.org.

Engin ummæli: