´
Á Hvammstangahöfn er gámasvæði þar sem íbúar, stofnanir og fyrirtæki geta flokkað úrgang. Enginn starfsmaður er með viðveru á staðnum og ekki er tekið gjald fyrir það sem komið er með. Starfmenn sveitarfélagsins og sorphirðuverktaki hafa óbeina vöktun með gámunum en íbúum er treyst til að halda flokkun og umgengni góðri enda er það hagur allra.

Á Hvammstangahöfn er m.a. gámur fyrir ónýta hægindastóla.
´
Á höfninni eru gámar fyrir timbur, brotamálma, gler, hjólbarða, kælitæki og ónýt húsgögn. Einnig eru þar þrír gámar ætlaðir undir almennan heimilisúrgang.
´
Hér með er skorað á íbúa að standa vörð um góða umgengni á gámasvæði sveitarfélagsins á Hvammstangahöfn.
Hér með er skorað á íbúa að standa vörð um góða umgengni á gámasvæði sveitarfélagsins á Hvammstangahöfn.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli