Nú er kominn sá tími að íbúar eru farnir að taka til á löndum sínum og lóðum. Starfsmenn sveitarfélagsins eru einnig byrjaðir sína tiltekt á opnum svæðum, stígum og stéttum í þéttbýliskjörnunum. Þessa mynd tók útsendari Umhverfisfrétta í dag af starfsmönnum áhaldahússins er þeir voru að smúla sand og möl af gangstéttum við Norðurbraut á Hvammstanga.
Á næstu dögum er von á götusópara og því upplagt tækifæri fyrir íbúa að þrífa hjá sér stéttar og plön áður en göturnar verða hreinsaðar.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli