Ekki hefur blásið byrlega í Húnaþingi vestra undafarna daga. Jörð hefur á ný klæðst sínum vetrarham og gengið hefur á með éljum. Þessi ótíð hefur sett hefðbundin garðyrkjustörf í uppnám og slátturhópurinn hefur lítið getað slegið þessa vikuna.
Starfsmenn áhaldahúss grafa fyrir stétt, bekk, ruslatunnu og trjábeði við Norðurbraut á Hvammstanga. ----
-
-
Kuldalegt var að líta yfir Bangsatúni í vikunni.
Hafnarkanturinn snyrtur. Þrátt fyrir óhagstætt veður í vikunni hefur margt verið að gera hjá starfsmönnum sveitarfélagsins. Vinnuvélar áhaldahússins og starfsmenn vinnuskóla hafa t.a.m. unnið við að skafa burt grjót og illgresi af hafnarkantinum en verið er að fegra ásýnd svæðisins og hreinsa rusl og geymsluúrgang af svæðinu.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli