24 apríl 2006

Söfnun á heyrúlluplasti

-
Heyrúlluplasti verður safnað saman í næstu viku, 1. til 5. maí, til þeirra aðila sem undanfarin ár hafa óskað eftir slíkri þjónustu. Undanfarin ár hefur heyrúlluplast verið tekið frá bændum í Húnaþingi vestra án endurgjalds og engin breyting er á því nú.
-
-
Nýjir aðilar sem óska eftir að losna við heyrúlluplast eru vinsamlegast beðnir að láta Hrannar Haraldsson verktaka vita í síma 895-2052. Síðast hreinsun á heyrúlluplasti þetta árið verður í júní n.k.
-

Engin ummæli: