27 apríl 2006

Þetta er helst í fréttum

Margt er um að vera í Húnaþingi þessa dagana. Iðnaðarmenn hafa í nógu að snúast enda víða framkvæmdir í gangi við stór og smá mannvirki. Þeir eru t.d. ófáir iðnaðarmennirnir sem starfa um þessar mundir við breytingar á húsnæði Sparisjóðs Húnaþings og Stranda við Höfðabraut 6 en þar mun Sparisjóðurinn brátt opna ný og glæsileg salarkynni.
Þessir tveir garpar, Gunnar Ægir Björnsson og Þorvaldur Björnsson, eru meðal fjölmargra iðnaðarmanna sem vinna við ný salarkynni Sparisjóðsins.
-
Af öðrum framkvæmdum má nefna uppbyggingu Selasetursins á Hvammstanga sem er í fullum gangi og fyrirhugaðar framkvæmdir á lóð og húsnæði Grettistaks á Laugarbakka. Afreksfólk úr sýslunni hefur einnig verið mikið í fréttum undanfarið enda hampar nú lið Kormáks í 9. flokki kvenna Íslandsmeistaratitli í körfuknattleik í sínum aldursflokki og Húnvetningurin Aðalsteinn Ingi Halldórsson frá Súluvöllum varð nýverið Íslandsmeistari í ólympískum hnefaleikum í veltivigt.
Þá verður nóg um að vera næstu daga fyrir menningarþyrsta sveitunga og gesti. Húnvetnskir áhugamenn um jazz blása til sóknar með stofnun jazzklúbbs í Félagsheimilinu Hvammstanga föstudagskvöldið 28. apríl n.k. Útlendingahersveitin, sem skipuð er þeim Árna Scheving, Pétri Östlund, Árna Egilssyni, Jóni Páli Bjarnasyni og Þórarni Ólafssyni verður viðstödd stofnun klúbbsins og leika þeir félagar jazz eins og þeim einum er lagið. Gleðinni verður haldið áfram á Þinghúsinu á Hvammstanga laugardagskvöldið með drykkjum, kræsingum og ljúfum jazztónum Guitar Islandico (Gunnar Þórðarson, Björn Thoroddsen og Jón Rafnsson) sem koma í heimsókn í tilefni jazzhátíðarinnar. Þá má nefna að á mánudaginn n.k. verða árlegir vortónleikar Lillukórsins í Félagsheimilinu á Hvammstanga.

Engin ummæli: