24 apríl 2006

Vinnuskólastarfið í sumar


Húnaþing vestra mun starfrækja vinnuskóla í sumar fyrir 13, 14, 15, og 16 ára ungmenni. Hlutverk vinnuskólans er að kenna þeim almenn vinnubrögð og örva þau til hollrar útiveru. Í skólann verða tekin ungmenni sem fædd eru 1993, 1992, 1991 og 1990. Vinnutími er frá klukkan 8:30 til 12:00 árdegis og 13:00 til 16:30 síðdegis, frá mánudegi til föstudags.

Unnið að viðhaldi trjábeða sumarið 2005

Vinnutími 13 og 14 ára ungmenna.
Ungmenni fædd 1993 fá vinnu þrjá og hálfan tíma á dag í einn mánuð en þau sem fædd eru 1992 fái vinnu þrjá og hálfan tíma á dag í tvo mánuði. Vinnuskólinn hefst hjá þessum aldurshópum 14. júní n.k.

Vinnutími 15 og 16 ára ungmenna.
Ungmenni sem fædd eru 1991 og 1990 fá vinnu sjö tíma á dag í 8-10 vikur. Breytingar kunna að verða gerðar eftir að séð verður hversu margir sækja um vinnu í skólanum. Vinnuskólinn hefst hjá þessum aldurshópum 7. júní n.k.

Innritun í skólann fer fram á skrifstofu Húnaþings vestra í síma 455-2400 og eru umsækjendur hvattir til að innrita sig sem fyrst og eigi síðar en 12. maí næstkomandi.

Laun verða; árgangur
1990 477 kr/klst
1991 397 kr/klst
1992 344 kr/klst
1993 283 kr/klst

Engin ummæli: