27 apríl 2006

Blaða- og fernusöfnun við Staðarskála

Gámar fyrir dagblöð og fernur hafa nú verið staðsettir við Staðarskála í Hrútafirði. Um er að ræða tilraunaverkefni Staðarskála og sveitarfélagsins en vonir standa til að þetta fyrirkomulag verði varanlegt og að íbúar verði duglegir að notfæra sér þessa þjónustu.
Nú er tekið á móti dagblöðum og fernum við Staðarskála í Hrútafirði.
-
Söfnunargámar fyrir þessa endurvinnsluflokka eru einnig á Hvammstanga og á Laugarbakka en allt sem safnast í gámana er sent til endurvinnslu á Akureyri. Þess má geta að í fyrra söfnuðust um 8 kg af pappír og dagblöðum að meðaltali frá hverjum íbúa og rúmlega eitt kg af fernum. Að öðrum kosti hefði þetta hráefni verið urðað hér í sveitarfélaginu.

Söfnunargámar fyrir dagblöð og fernur við bensínsöluna.
-

Það hráefni sem má koma í gámana er eftirfarandi:

Fernur

Allar fernur, þ.e. undan nýmjólk, léttmjólk, undanrennu, rjóma, súrmjólk, ávaxtasafa, fernur undan sápu o.fl.. Skola þarf fernurnar lauslega að innan. Hægt er að koma 11 samanbrotnum fernum inn í eina opna fernu. Hjá Endurvinnslunni hf á Akureyri er hráefninu svo baggað saman og sent til Svíþjóðar til framleiðslu ýmiskonar umbúða fyrir matvæli s.s. morgunkornspakka.

Pappír

Allur hvítur pappír, þ.e. hvítur úr pappírsverksmiðjunni. Ekkert gerir til þó á hann sé prentað í öllum regnbogans litum. Aðalatriðið er að ekki sé um að ræða litaðan pappír s.s. föndurkarton. Plastpokar mega ekki fara með pappírnum í söfnunargámana. Hráefnið verður svo sent til Endurvinnslunnar hf á Akureyri og þaðan út til Svíþjóðar þar sem hann verður endurunninn og framleitt úr honum t.d. salernis- og eldhúspappír.

Engin ummæli: