09 febrúar 2006

Bifreiðastöður bannaðar

Að gefnu tilefni er bent á að númerslausir og/eða ógangfærir bílar mega ekki vera á götum, lóðum eða opnum svæðum. Heilbrigðiseftirlitið fjarlægir bíla og bílflök að undangenginni aðvörun með álímingarmiða, á kostnað eigenda.

Númerslaus bifreið á Hvammstanga

Í Grænulaut, á Syðri-Kárastöðum er hægt að geyma fyrirmerðamikla hluti s.s. bifreiðar og gáma gegn hóflegu gjaldi. Til að fá frekari upplýsingar er hægt að hringja í umsjónarmann Grænulautar, Jón Loftur Ingólfsson, í síma 822-5417.

Gjaldskrá vegna geymslusvæða í Grænulaut Syðri-Kárastöðum

A. 1-25 m2 svæði kr. 500 á mánuði.
B. 26-50 m2 svæði kr. 900 á mánuði.
C. 51-75 m2 svæði kr. 1.200 á mánuði.
D. 76-100 m2 svæði kr. 1.500 á mánuði.
Lágmarksgjald miðast við 3 mánaða leigu í hverjum gjaldflokki.

Engin ummæli: