-
Búið er að taka saman magntölur tengdar sorphirðu, urðun og endurvinnslu í sveitarfélaginu fyrir árið 2005. Fyrir áhugasama eru hér nokkrar tölulegar staðreyndir: Verktaka sorphirðu var greitt fyrir að losa 10350 rúmmetra úr lokuðum gámum á Hvammstangahöfn og í dreifbýli Húnaþings vestra. Þá var verktaka greitt fyrir að fjarlægja 24169 poka úr heimilistunnum. Til að sækja úrganginn úr tunnum og gámum þurfti að keyra 15261 km.
-
-
Skúffa undir brotamálma (17m3) var losuð 33 sinnum, gámur fyrir hjólbarða (10m3) var tæmdur 17 sinnum og gámur fyrir hústæki og úrsérgengin húsgögn var tæmdur 23 sinnum árið 2005.
Söfnunargámar fyrir dagblöð, pappír og fernur eru við verslunina Bakka, Laugarbakka og við Kaupfélag Vestur-Húnvetninga. Samkvæmt tölum frá árinu 2005 voru um 8 tonn af dagblöðum og pappír sent áfram til endurvinnslu og um 1207 kg af fernum.
Mikið magn af dagblöðum og fernum safnast árlega í söfnunargámana á Hvammstanga og Laugarbakka
Móttaka fyrir pappír og bylgjupappa er við Norðurbraut á Hvammstanga. Þar er staðsettur gámur sem íbúar geta komið með skrifstofupappír, dagblöð og bylgjupappa. Nýlega hófst tilraunaverkefni í tengslum við þessa söfnun þar sem hluti hráefnisins er jarðgert í Grænulaut á Syðri Kárastöðum. Árið 2005 voru 3 tonn af pappír og pappa jarðgerð þar en vonandi verður það magn mun meira árið 2006.
-


Engin ummæli:
Skrifa ummæli