10 febrúar 2006

Jarðgerð í Húnaþingi vestra

Húnaþing vestra, í samstarfi við Siglufjarðarkaupstað og Háskólann á Hólum, vinnur að undirbúningi jarðargerðar á heimilisúrgangi. Í því sambandi hefur verið haft samband við þá aðila sem starfað hafa að þessum málum í öðrum sveitarfélögum. Tálknafjörður og Hvanneyri eru dæmi um staði sem hafa unnið að jarðgerð lífræns heimilisúrgangs. Már Erlingsson sveitarstjóri á Tálknafirði okkur myndir og upplýsingar um starfið þar á bæ en sjálfur sótti ég Hvanneyri heim og tók nokkrar myndir.
.
Már segir íbúa á Tálknafirði flokka úrgang sinn í a.m.k. tvo flokka, brennanlegt og óbrennanlegt. Auk þess flokkar um þriðjungur heimilina matarleifar frá brennanlega hlutanum. Þá eru dagblöð einnig flokkuð á mörgum heimilum. Matarleifum og tættum dagblöðum er blandað saman í þar til gerðri tromlu. Afurðin er molta sem nýtt er í garða á Tálknafirði. Einnig er moltan nýtt sem áburður á íþróttasvæði Tálknfirðinga. þeir sem voru með í upphafi eru flestir enn að flokka. Fjöldi íbúa á Tálknafirði er uim 350 en moltuframleiðslan árið 2003 var um 6000 kg. Áætlað er að um 105 íbúar flokki lífrænan heimilisúrgang frá öðru rusli. Af því leiðir að íbúar sem flokka lífrænan úrgang jarðgera um 57 kg. af matarleifum á mann ár hvert.
.
Á Hvanneyri er lífrænn heimilsúrgangs einnig jarðgerður frá um 75 heimilum. Reynslan á Hvanneyri hefur verið mjög góð og flokkun ekki verið vandamál. Jarðgerðin hófst á sínum tíma sem tilraunaverkefni Bændaskólans á Hvanneyri (nú Landbúnaðarháskóla Íslands) og fleiri aðila. ÁFORM-átaksverkefni gerði starfið mögulegt með því að fjármagna kaupin búnaðinum.
-
Hér eru nokkrar myndir frá jarðgerðinni á Tálknafirði og Hvanneyri.

Jarðgerðarvélin á Tálknafirði er af gerðinni ALE-trumman líkt og á Hvanneyri. Þessar vélar eru framleiddar af Kompostinnavation ab í Gautaborg.
-
-
-
-
-
Loftræstirörin og tölvu búnaðuri tromlunar. Tromlan er loftræst þannig að stöðugt leikur loft um úrganginn.

-
-
-
-

Inn í þetta op fer lífrænn úrgangur en belgurinn á tromlunni er úr riðfríu stáli en tromlan snýst eftir gefinni forskrift, t.d. einn snúning á klukkutíma fresti.

-

-

Hér kemur svo afraksturinn út, hrá molta tilbúinn til frekari vinnslu.

-

-

-

Jarðgerðartromlan á Hvanneyri er einnig af gerðinni ALE-trumman.



-

-


Afrakstur jarðgerðarinnar á Hvanneyri, molta, í lokuðu kari fyrir utan aðstöðuhús jarðgerðarinnar.

-
-
-
-

Gróðurhúsið sem hýsir jarðgerðina á Hvanneyri.



-
-
-
-

Hálmur er notaður sem stoðefni í jarðgerðina á Hvanneyri en á Tálknafirði nota þeir tættan pappír.

Engin ummæli: