19 janúar 2006

Spekingar spjalla

Sá góði og skemmtilegi siður hefur myndast í bóka- og skjalasafni Húnaþings vestra að þar koma reglulega saman miklir höfðingjar sem spjalla og reyna að leysa heimsvandann. Það er enda fátt betra en að fá sér kaffi eða te í morgunsárið í góðra vina hóp, innan um hámenninguna í hillunum.
-
Stefán Þórhallsson, Ólafur Valdimarsson og Björn (Bangsi) Sigurðsson ræða um landsins gagn og nauðsynjar.
-
Allir eru velkomnir á bókasafnið og þar er fjölbreytt úrval bóka og tímarita fyrir alla aldurshópa. Einnig stendur til boða aðgangur að gögnum héraðsskjalasafns, en þar eru varðveittar upplýsingar af fjölbreyttum toga frá fyrri tíð. Þá eiga gestir safnsins þess kost að komast í tölvu- og netsamband gegn vægu gjaldi.

Engin ummæli: