Verið er að skoða möguleikana á að jarðgera heimilisúrgang hér í sveitarfélaginu. Í því sambandi hefur tekist samstarf við Siglufjarðarkaupstað og Háskólann á Hólum sem einnig eru að skoða jarðgerðarmálin alvarlega.
Markmið samstarfsins er m.a. að taka saman upplýsingar um magn og kostnað við sorphirðu, flutning og urðun á lífrænum úrgangi hjá Húnaþingi vestra, Siglufjarðarbæ og Háskólans á Hólum. Þá á að taka saman kostnað við jarðgerðarvélar, s.s. viðhalds- og rekstrarkostnaðar. Þessi úttekt er í samræmi við staðardagskrá 21 í Húnaþingi vestra og stefnumótun stjórnvalda og sveitarfélaga um sjálfbæra þróun.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli