-
Sveitarstjórn Húnaþings vestra hefur nú staðfest drög að umhverfisvænum innkaupum sem umhverfisstjóri lagði fyrir byggðarráð þann 19. desember síðastliðin. Tillagan er unnin í samræmi við aðrar áætlanir sveitarfélagsins sbr. Framtíðarsýn, staðardagskrá 21 fyrir Húnaþing vestra. Byggðarráð lýsti yfir ánægju sinni með framsetta stefnu og samþykkti hana fyrir sitt leyti.
-
Svona seðla brúkuðu vel stæðir Húnvetningar snemma á síðustu öld til að kaupa ýmsar nauðsynjar og óþarfa.-
Stefna Húnaþings vestra varðandi umhverfisvæn innkaup er eftirfarandi:
-
1. Við innkaup skal athugað hvort raunveruleg þörf er fyrir vöruna eða hvort hægt er að bæta úr þörfinni án þess að kaupa nýja vöru.

2. Við innkaup skal leitast við að velja vörur sem framleiddar eru sem næst notkunarstað.

3. Við innkaup skal taka tillit til endingar og orkunotkunar vörunar.

4. Við innkaup skal velja vörur sem eru síður skaðlegar heilsu manna og umhverfinu en sambærilegar vörur ætlaðar til sömu nota.

5. Við innkaup skal velja vöru með viðurkenndum umhverfismerkjum eða vörur sem uppfylla sambærileg skilyrði þó þau beri ekki umhverfismerki.

Sveitarstjórn Húnaþings vestra beinir því til forstöðumanna stofnana sveitarfélagsins að framfylgja þessari umhverfisstefnu en umhverfis- og garðyrkjustjóri mun á næstunni kynna hana nánar.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli