02 desember 2005

Átak í atvinnumálum

-
Koltrefjaverksmiðja sem hugmyndir eru um að reisa í Húnaþingi gæti skapað 100 til 120 störf á svæðinu. Samband sveitarfélaga á Norðurlandi vestra kannar möguleika á að koma slíkri verksmiðju á laggirnar.
-
Boeing 787 Dreamliner þota sem kemur á markaðinn árið 2010
-
Koltrefjar eru oftast búnar til úr plasti. Sem dæmi má nefna að Boeing verksmiðjurnar hafa ákveðið að smíða þotur þar sem skrokkurinn verður að megninu til úr koltrefjastyrktu epoxýi, í stað áls eins og nú er notað. Vélin verður um tuttugu tonnum léttari með þessu. Jakob Magnússon, framkvæmdastjóri Sambands sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, segir athugunina á frumstigi. Heimild: ruv.is. Höf. rzg.
-

Engin ummæli: