01 desember 2005

Birtir yfir Húnaþingi

-
Það sést víða á húsum að jólin nálgast og á hverjum degi birtir til í skammdegismyrkrinu. Þessar myndir voru teknar á ferð um Hvammstanga í kvöld.
-
Döggubúð í sínu fínasta skarti
-
Jólaljósin eru eins og margt annað háð tískustraumum. Nú er t.d. sífellt að aukast að íbúar noti hvítar ljósaseríur með smáum perum til að skreyta hús sín í stað lituðu stóru peranna sem voru eitt sinn í hátísku. Þá þykja blikkandi ljós ekki vera mjög móðins.
-
Brekkugata 12
-
Eitt sinn voru það aðeins kertaljósin sem lýstu híbýli mannana á jólum en svona til fróðleiks má nefna það að snillingurinn Edward Johnson, félagi Thomasar Alva Edisons, bjó til fyrstu ljósaseríuna árið 1882. Mikilvægt er að kynna sér öll öryggisatriði varðandi meðferð kerta og rafbúnaðar, sérstaklega nú um jólin.
-
Á morgun 2. desember verður kveikt á jólatrénu við Félagsheimilið á Hvammstanga og þar má búast við miklu fjöri.
-

Engin ummæli: