Í kassann komast auðveldlega yfir 50 fernur. Best er að kaupa eins lítra fernur því auðveldast er að brjóta þær saman. Þegar búið er að skola fernurnar að innan eru þær settar í kassann og honum lokað. Með þessu móti kemur engin lykt og þægilegt er að losa úr þessu íláti í næsta söfnunargám.
Söfnunargámar eru staðsettir við Kaupfélag Vestur- Húnvetninga, matvörubúð, og við verslunina Bakka á Laugarbakka. Þangað má koma með allar fernur, þ.e. undan nýmjólk, léttmjólk, undanrennu, rjóma, súrmjólk, ávaxtasafa (líka fernur með álhúð að innan), fernur undan sápu o.fl.. Skola þarf fernurnar að innan áður en þær eru settar í söfnunargáma. Vegna góðrar þátttöku íbúa í fernusöfnuninni stendur til að fjölga söfnunargámunum upp úr áramótum.
Þetta litla ílát undir lífrænan heimilisúrgang er það nýjasta á markaðnum hérlendis
Ílátið kemst auðveldlega fyrir undir eldhúsvaskinum og hvítu pokarnir sem settir eru í það eru búnir til úr maíssterkju og brotna því niður í jarðgerðartunnum. Undirritaður fékk þetta ílát hjá Stefáni Gíslasyni verkefnisstjóra Staðardagskrár 21 á Íslandi og framkvæmdastjóra UMÍS ehf.
Stór hluti þess úrgangs sem kemur frá heimilum er lífrænn og brotnar hratt niður í náttúrunni séu rétt skilyrði fyrir hendi. Heimajarðgerð er auðveld fyrir alla sem hafa sérstakan garð og veitir fólki, ekki síst börnum, skilning og þekkingu á náttúrulegu hringferli lífrænna efna.
Pappaöskjum undir rafhlöður var dreift til íbúa Húnaþings vestra fyrir rúmu áriRafhlöður eru flokkaðar sem spilliefni og mega ekki fara í ruslið með öðrum heimilisúrgangi. Víða í sýslunni er hægt að tæma kassana, s.s. í Matvöruverslun KVH, Versluninni Bakka Laugarbakka, í Víðigerði, Staðarskála og við áhaldahús Húnaþings vestra Búlandi 3 Hvammstanga. Ennþá eru til nokkrir kassar á skrifstofu Húnaþings vestra sem hægt er nálgast á opnunartíma skrifstofunnar.
Þessar níðsterku og fallegu innkaupatöskur eru til sölu hjá Landvernd
Töskurnar borga sig upp á stuttum tíma þar sem kaup á plastpokum eru fljót að safnast upp í góða summu. Taskan er með 6 cm hliðum og botni og saum eftir hliðunum miðjum. Þeim sem hafa áhuga á að eignast poka eða nota til gjafa bendum við á að senda Vistvernd í Verki tölvupóst
(


Engin ummæli:
Skrifa ummæli