Sumum er farið að finnast nóg um markaðsvæðingu og glymjanda jólanna og því hefur umfjöllun Vistverndar í verki um vistvænt jólahald átt upp á pallborðið hjá mörgum. Umhverfismál eru ekki bara verndun sérstakra náttúruminja eða flokkun sorps. Við erum í hvert einasta sinn sem við notum peningana okkar til að kaupa einhverja vöru – að nota peninginn sem kosningaseðil og kjósa umhverfinu í vil eða óvil.
Á heimasíðu Vistverndar í verki, www.landvernd.is/vistvernd er að finna umfjöllun um val á jólatrjám, hugmyndir að persónulegum gjöfum og gjöfum sem fela í sér þjónustu fremur en efni, umfjöllun og hugmyndir um innpökkun gjafa, jólahreingerningar og mat svo eitthvað sé nefnt. Vistvernd í verki er umhverfisverkefni fyrir heimili sem aðstoðar fólk við að kynnast því hvernig er hægt að gera heimilishald og lífsstíl vistvænni.
Bestu kveðjur og gleðileg jól
Bryndís Þórisdóttir verkefnastjóri Vistverndar í verki.
Bestu kveðjur og gleðileg jól
Bryndís Þórisdóttir verkefnastjóri Vistverndar í verki.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli